Æfinganærbuxur – styðja barnið þitt á leiðinni úr bleyjum í nærföt
Að hætta með bleyju er stór áfangi – og við erum hér til að styðja ykkur á þeirri vegferð. Æfinganærbuxurnar frá Bambino Mio hjálpa barninu að byggja upp sjálfstraust og læra að þekkja eigin líkamsmerki á öruggan og þægilegan hátt.
Nýjar og endurbættar með falinni saumalínu sem heldur rakadræga efninu örugglega á sínum stað – þvott eftir þvott.
Af hverju að velja æfinganærbuxurnar frá Bambino Mio?
- Áreiðanlegar – innbyggð lög taka við litlum slysum
- Mjúkar og þægilegar – úr teygjanlegum efnum sem henta vel fyrir virka krakka
- Hvetjandi – barnið finnur fyrir bleytu og lærir að tengja það við að fara á koppinn
- Einfaldar í notkun – auðvelt að fara í og úr, og þvo
- Endingargóðar – hannaðar til að endast vel í daglegri notkun
Ef barnið er á mörkum stærða mælum við með að velja stærð upp.
Mikilvægt að vita
Æfinganærbuxurnar eru ekki eins rakadrægar og bleyjur. Þær eru hannaðar til að halda utan um lítil slys og styðja við umskipti yfir í nærföt. Þær innihalda vatnsfráhrindandi lag og innri púða sem dregur í sig lítið magn af vökva – þannig finnur barnið fyrir bleytu og lærir smám saman að bregðast við.
Við mælum með að eiga 3–5 pör, svo auðvelt sé að skipta og þvo daglega.
Við erum með ykkur í þessu ferli 🤍
Koppaþjálfun þarf ekki að vera stressandi – með réttum stuðningi verður þetta jákvæð og styrkjandi upplifun fyrir bæði barn og foreldra.
Efni:
Æfingarnærbuxurnar okkar eru framleiddar úr blöndu af bómull og pólýester sem gerir þær einstaklega mjúkar við húð barnsins, en jafnframt auðveldar í þvotti og fljótþornandi.
Rakadræga svæðið inniheldur pólýesterfyllingu og ytra lagið er húðað til að draga úr því að óhöpp leki í gegn.
80% bómull, 20% pólýester, húðað með pólýúretani
Sendingarmáti
Sendingarmáti
Frí heimsending ef verslað er fyrir 20.000kr eða meira.
Afhendingartími er alla jafna 1-3 virkir dagar með Dropp
Vöruskil
Vöruskil
- Auðvelt að skipta svo lengi sem varan er ónotuð. Af öryggisástæðum er ekki hægt að skila bílstólum eða base-um.












