
Bambus innlegg / bústerinn frá Noah Nappies er 4 laga bambus terry blanda sem er virkilega mjúkt og fyrirferðarlítið efni. Bústerinn er rakadrægur en ekki of þykkur. Hann má liggja uppvið húð barns en passar annars í allar one size taubleyjur.
Öll efni Noah Nappies hafa fullt hús af vottunum meðal annars Oeko-tex og GOTS.
Efni:
- Innlegg: 85% Bambus viscose 15% Polyester.
Þvottur & umhirða:
-
Þvottarútína: Við mælum við með köldu skoli til þess að byrja með. Eftir skolið ráðleggjum við heitt 40°- 60° langt þvottaprógram.
-
Þurrkari: Innleggið má fara á heita stillingu í þurrkaranum.
- Notist ekki við: Klór og mýkingarefni.