Vörur sem viðskiptavinir kaupa líka
        
      
      
        
        
      
    Noah Nappies blautpokarnir eru hannaðir og framleiddir með væntumþykju í huga bæði gagnvart litlu kynslóðinni og jörðinni. Pokinn er sniðugur undir blaut/skítug föt/bleyjur og lengi mætti áfram telja!
Öll efni Noah Nappies hafa fullt hús af vottunum meðal annars Oeko-tex og GOTS.
Eiginleikar
- Frábær hönnun: Rennilás neðst á pokanum til þess að auðvelda að tæma pokann og nú þarf ekki lengur að koma við óhreinar bleyjur fyrir þá sem eru viðkvæmir, opnar einfaldlega báða rennilásana og hendir pokanum í þvottavélina með óhreinu bleyjunum!
 
- 
Tveir hankar: Hægt er að opna hankana með smellu að framan og því hengja pokann á þann stað sem hentar þér. Til dæmis á vagninn, innkaupakerruna, í þvottahúsið, á skiptiborðið eða jafnvel aftan á sætið í bílnum.
 - Bless vond lykt!: Pokinn er hannaður til þess að halda, geyma og koma í veg fyrir að lykt smitist úr innihaldi pokans. Pokinn er gerður úr tvöföldu PUL efni sem kemur enn frekar í veg fyrir að lykt smitist úr innihaldi pokans.
 
- Einstaklega mjúkt og endurunnið PUL efni: Ytra efni pokans kallast PUL efni og er mögulega eitt af því mýksta og sveigjanlegasta PUL efni sem finnst á markaðnum í dag.
 
Þvottaleiðbeiningar
- Þvottarútína: Opnaðu hólfin fyrir þvott. Við mælum með köldu skoli til þess að byrja með. Eftir skolið ráðleggjum við heitt 40°-60° langt þvottaprógram. Einfaldur 40° þvottaprógram gæti reynst nóg, það fer allt eftir leyndardómsfulla innihaldi pokans! 💩
 
- 
Þurrkari: Pokanum er ekki ætlað að fara í þurrkara nema á mesta lagi kalt prógram. Við mælum með því að pokinn sé hengdur upp eftir þvott.
 - Notist ekki við: Klór eða mýkingarefni.
 
Efni
- Ytra efni: Vatnshelt endurunnið 100% Polyurethane (PUL)
 
- 
Rennilás: Veglegur YKK rennilás fyrir styrk og góða endingu
 - Oeko-tex standard 100 certified and contain no harmful chemicals
 
                        
                          Sendingarmáti
                        
                        
                          
                          
                        
                      
                  
                  Sendingarmáti
Frí heimsending ef verslað er fyrir 20.000kr eða meira.
Afhendingartími er alla jafna 1-3 virkir dagar með Dropp
                        
                          Vöruskil
                        
                        
                          
                          
                        
                      
                  
                  Vöruskil
- Auðvelt að skipta svo lengi sem varan er ónotuð. Af öryggisástæðum er ekki hægt að skila bílstólum eða base-um.