2 Ullar lekahlífar frá Responsible Mother

2 Ullar lekahlífar frá Responsible Mother

Verð
990 kr
Verð
Útsöluverð
990 kr
Magnsverð
fyrir 
Lagerstaða
Uppselt
Vsk innifalinn.


Ullin dregur gullna vökvann í sig og heldur húðinni þurri á sama tíma. Ullin heldur hitastiginu réttu og vinnur gegn bakteríum.

Nú verð ég aðeins að fá að segja mína sögu! (Arna). Ég á tvö börn, 3 & 1 árs. Með bæði börnin fékk ég heiftarlega sýkingu í geirvörtuna og endaði með því að þurfti að stinga í gegnum geirvörtuna í graftarpoll sem lá í bólguhnúti undir geirvörtunni. Mjólkurgöngin voru 100% stífluð, já þetta hljómar alls ekki vel en það sem ég lærði í mínum endalausu spítalaheimsóknum til ljósmæðra og frábærra brjóstaráðgjafa var: Nota ullar innlegg. Ullin hefur þann frábæra eiginleika að halda hitastiginu á líkamanum okkar hárréttu og þurfum við mjólkandi einstaklingar að huga einstaklega vel að brjóstunum okkar fyrstu mánuði eftir fæðingu. Brjóstabólgur, stíflur og vesen geta bankað mjög hratt uppá ef við skýlum brjóstunum ekki fyrir vind og kulda. Ljósmóðirin mín sagði við mig að ullar innlegg halda passlegum hita og stuðla gegn óþarfa stíflum sem geta verið sársaukafullar. Langaði að deila þessu með ykkur því ef ég get aðstoðað þig við að koma í veg fyrir andlega erfiða og líkamlega sársaukafulla brjóstasýkingu þá vil ég gera það. Knús, þú ert sterk og þú ert mögnuð 

Customer Reviews

Based on 1 review
100%
(1)
0%
(0)
0%
(0)
0%
(0)
0%
(0)
D
Dagný Hulda Valbergsdóttir
Vildi ég hefði átt þetta fyrr

Tær snilld. Draga vökva vel í sig og halda á mér hita. Ég er lausmjólka og þarf stundum að skipta 1x um lekahlífar yfir daginn. Skil þetta eftir flatt á borði yfir nótt til að nota næsta dag, og þarf sjaldan að þvo. Ég er mjög viðkvæm fyrir kulda á þessu svæði þegar ég er með barn á brjósti en elska að vera úti, svo þetta var game-changer fyrir mig- mun þægilegra en venjulegu bómullarlekahlífar eða einnota þar sem lekahlífarnar haldast alltaf hlýjar- eða við sama hitastig og líkaminn 😃 Mæli með!