
Besta vasableyjan samkvæmt Telepgraph 2022!
Hægt er að nota þessa týpu sem bæði Ai2 bleyju og vasableyju. Hægt er að festa innleggin með smellu eða setja innleggin ofaní vasann í bleyjunni.
Eiginleikar bleyjunnar:
Stay Dry wicking jersey efni: Efnið upp við húð barnsins er kallað wicking jersey og líkist efni íþróttafatnaðs. Efnið er þekkt fyrir viðeigandi eiginleika sína í taubleyjunotkun en það er að halda húðinni þurri og svalri. Börn með viðkvæma húð hafa oft á tíðum verið að bregðast betur við wicking jersey efninu heldur en öðrum efnistýpum og mætti því segja að efnið sé gott fyrir viðkvæma húð.
Tvöföld teygja: Bleyjan er með tvöfalda teygju utan um lærin og einnig breiða bakteygju sem kemur í veg fyrir leka.
Teygjanlegir vængir: Bleyjan er með teygjanlegum vængjum sem líkist helst sundbola efni og er því mjög auðvelt og þægilegt að festa bleyjuna á barnið.
Passar frá ca 4 - 16 kg og ætti því að passa út allt bleyjutímabilið!