Rakagefandi og nærandi olía fyrir börn sem inniheldur E-vítamín og lífrænar olíur eins og jojoba og arganolíu.
Olíuna er hægt að nota sem auka rakakrem fyrir ungbarna/barnahúð eftir bað eða setja nokkra dropa í baðvatnið. Það er mjög gott að bera olíuna í hársvörðinn til að ná skáninni sem myndast í hársverði barna.
Mjög gott er að nudda húðina með olíunni og gefa barninu gott slökunarnudd fyrir svefninn.
Olían hentar sérstaklega þunguðum konum þar sem lífrænu olíurnar og E-vítamín veita aukinn raka og hlúa að vaxandi húð á vaxandi maga.
Olían hentar bæði börnum og fullorðnum. Hún er td. mjög góð við að fjarlægja farða af andliti og nota við rakstur.
Innihaldsefnin eru 100% af náttúrulegum uppruna.
                        
                          Sendingarmáti
                        
                        
                          
                          
                        
                      
                  
                  Sendingarmáti
Frí heimsending ef verslað er fyrir 20.000kr eða meira.
Afhendingartími er alla jafna 1-3 virkir dagar með Dropp
                        
                          Vöruskil
                        
                        
                          
                          
                        
                      
                  
                  Vöruskil
- Auðvelt að skipta svo lengi sem varan er ónotuð. Af öryggisástæðum er ekki hægt að skila bílstólum eða base-um.
 
     
             
            