Vörur sem viðskiptavinir kaupa líka
Noah Nappies blautpokarnir eru hannaðir og framleiddir með væntumþykju í huga bæði gagnvart yngstu kynslóðinni og jörðinni. Blautpokinn er með einu hólfi sem lokast með YKK rennilás. Raki og bleyta haldast því inni í pokanum. Pokinn er sniðugur sem skiptitaska, leikskólapoki undir blaut/skítug föt/bleyjur, sundpoki og lengi mætti áfram telja!
Öll efni Noah Nappies hafa fullt hús af vottunum, meðal annars Oeko-tex og GOTS.
Eiginleikar
- Einn hanki: Hægt er að opna hankann með smellu að framan og því hengja pokann á þann stað sem hentar þér. Til dæmis á vagninn, innkaupakerruna, í þvottahúsið, á skiptiborðið og fleira.
- Bless vond lykt!: Pokinn er hannaður til þess að halda, geyma og koma í veg fyrir að lykt smitist úr innihaldi pokans í nokkrar klukkustundir.
- Einstaklega mjúkt og endurunnið PUL efni: Ytra efni pokans kallast PUL efni og er mögulega eitt af því mýksta og sveigjanlegasta PUL efnum sem finnst á markaðnum í dag.
Þvottaleiðbeiningar
- Þvotta rútína: Opnaðu hólfið fyrir þvott. Við mælum með köldu skoli til þess að byrja með. Eftir skolið ráðleggjum við langt 40°-60° heitt þvottaprógram. Einfalt 40° þvottaprógram gæti reynst nóg, það fer allt eftir leyndardómsfulla innihaldi pokans! 💩
- Þurrkari: Pokanum er ekki ætlað að fara í þurrkara nema á mesta lagi kalt prógram. Við mælum með því að pokinn sé hengdur upp eftir þvott.
- Notist ekki við: Klór eða mýkingarefni.
Efni
- Ytra efni: Vatnshelt endurunnið 100% Polyurethane (PUL).
- Rennilás: Veglegur YKK rennilás fyrir styrk og góða endingu.
Sendingarmáti
Sendingarmáti
Frí heimsending ef verslað er fyrir 20.000kr eða meira.
Afhendingartími er alla jafna 1-3 virkir dagar með Dropp
Vöruskil
Vöruskil
- Auðvelt að skipta svo lengi sem varan er ónotuð. Af öryggisástæðum er ekki hægt að skila bílstólum eða base-um.

