Premium All-in-two Vasableyja
Noah Nappies vörurnar eru hannaðar og framleiddar með væntumþykju í huga bæði gagnvart yngstu kynslóðinni og jörðinni. Bleyjan er vasableyja með margnota eiginleika til þess að koma til móts við allar þær óskir sem taubleyjuforeldrar og dagforeldrar sækjast eftir. Bleyjan stækkar með barninu og passar frá 3kg upp í 18kg! Mikilvægt er þó að hafa í huga að börn eru jafn misjöfn eins og þau eru mörg og ekki alltaf hægt að stóla á tölur.
Öll efni Noah Nappies hafa fullt hús af vottunum, meðal annars Oeko-tex og GOTS.
Eiginleikar
-
Stay Dry Wicking Jersey efni: Efnið upp við húð barnsins er kallað wicking jersey og líkist efni íþróttafatnaðs. Efnið er þekkt fyrir viðeigandi eiginleika sína í taubleyjunotkun en það er að halda húðinni þurri og svalri. Wicking jersey hefur verið að gera góða hluti sl. ár í taubleyjuheiminum og hafa mörg vörumerki skipt yfir í þetta efni. Börn með viðkvæma húð hafa oft á tíðum verið að bregðast betur við wicking jersey efninu heldur en öðrum efnum og mætti því segja að efnið sé gott fyrir viðkvæma húð. Að auki hafa taubleyjuforeldrar tjáð að kúkur festist síður í efninu og fellur betur í klósettið úr bleyjunni.
- Góð lekavörn: Bleyjan er með teygju við maga barnsins sem kemur enn frekar í veg fyrir að piss leiti út fyrir bleyjuna.
-
Einstaklega mjúkt og endurunnið PUL efni: Ytra efni taubleyjunnar kallast PUL efni og er mögulega eitt af því mýksta og sveigjanlegasta PUL efni sem finnst á markaðnum í dag. Mikið var lagt upp úr því í vöruþróuninni að PUL efnið væri með þessa eiginleika en það gerir bleyjunni kleift að vera fyrirferðarlítil og þar með betri hreyfanleiki fyrir barnið.
- Innlegg: Með bleyjunni fylgir mjög rakadrægt 8 laga bambus innlegg sem einnig er fáanlegt stakt. Innleggið er með tveimur smellum og passar í flest allar taubleyjur.
- Margnota bleyja á svo marga vegu: Þú getur notað bleyjuna á amk. tvo vegu. Settu innleggið í vasann á bleyjunni og notaðu stay dry efnið uppvið húð barnsins. Þú getur einnig lagt innleggið ofan á bleyjuna.
Þvottur & umhirða
-
Þvottarútína: Skilaðu kúknum í klósettið og geymdu bleyjuna í blautpoka. Við mælum með köldu skoli til þess að byrja með. Eftir skolið ráðleggjum við langt 40°-60° heitt þvottaprógram.
-
Þurrkari: Innleggin mega fara á háan hita í þurrkarann en við ráðleggjum að taubleyjan sjálf sé hengd upp til þerris þó hún megi fara á kalt prógram í þurrkaranum.
- Notist ekki við: Klór eða mýkingarefni. Krem sem innihalda sink minnka rakadrægni bleyjunnar þar sem sink er vatnsfráhindrandi.
Efni
- Ytra lag: Endurunnið 100% Polyurethane (PUL)
- Innra lag: 100% polyester, Award Wicking Jersey (AWJ)
Sendingarmáti
Sendingarmáti
Frí heimsending ef verslað er fyrir 20.000kr eða meira.
Afhendingartími er alla jafna 1-3 virkir dagar með Dropp
Vöruskil
Vöruskil
- Auðvelt að skipta svo lengi sem varan er ónotuð. Af öryggisástæðum er ekki hægt að skila bílstólum eða base-um.



