
Multi-use bleyjan frá Lunakind kemur í einni stærð og sameinar AIO og vasableyju.
AIO (All-in-One) er kerfi þar sem innleggið er fast við bleyjuna. Í þessari bleyju er innleggið fest í bleyjuna með smellum og þannig er hægt að aðskilja bleyjuna og innleggin sem dregur úr tímanum sem það tekur innleggin að þorna.
Bleyjan er með smellukerfi og passar á börn frá 3,5 kg upp að 16kg og ætti því að passa út allt bleyjutímabilið.
Bleyjan er gerð úr meira en 95% endurunnu efni sem hefur verið prófað af óháðum stofnunum til þess að tryggja að það sé laust við öll skaðleg efni.
Efni: Outer: 100% polyester (rPET) with polyurethane firm Inner: 100% polyester (rPET)
Þvottur & umhirða
-
Þvotta rútína: Skilaðu kúknum í klósettið og geymdu bleyjuna í blautpoka eða fötu/bala o.s.frv. Við mælum með köldu skoli til þess að byrja með. Eftir skolið ráðleggjum við heitt 40°-60° langt þvottaprógram.
-
Þurrkari: Innleggin mega fara í þurrkarann en við ráðleggjum að taubleyjan sjálf sé hengd upp til þerris.
- Notist ekki við: Klór eða mýkingarefni. Krem sem innihalda sink minnka rakadrægni bleyjunnar þar sem sink er vatnsfráhindrandi. Við mælum með því að nota Bossagaldur frá Villimey.