Þetta mun vera mismunandi eftir aldri barnsins og hversu oft áætlað er að þvo.
Hægt er að nota eins margar eða eins fáar og vilji er fyrir hendi, það þarf bara að hátta þvottarútínunni eftir því hversu margar taubleyjur eru til.
Mig langar líka að minna á að það er allt í góðu að nota bréfbleyjur með taubleyjum og engin skömm í því. Bara það að nota eina taubleyju á dag sparar ca 900 bleyjur sem annars færu í landfyllingu!
Ráðleggingar okkar miðast við þvott á 2-3 daga fresti:
10-12 þegar taubleyjur eru notaðar að hluta til (3-4 á dag)
Að minnsta kosti 18 fyrir notkun yfir allan daginn (5-6 á dag)
Allt að 30 fyrir notkun yfir allan daginn og nætur
]]>Næturbleyjur geta verið púsluspil þar til hið rétta "combo" lítur dagsins ljós í ykkar taubleyjurútínu.
Rakadrægustu efnin eru náttúruleg efni. Hemp, bambus og bómull. Hér getur þú séð rakadrægnina og hversu hratt efnin draga í sig vökva.
Eins og má sjá hafa öll efnin mismunandi eiginleika, hemp heldur mestum vökva en dregur hægast í sig á meðan gerviefni eins og microfiber/polyester heldur litlum vökva en dregur hratt í sig.
Okkar reynsla er að blanda af bambus og hemp er sú rakadrægasta og heppilegasta fyrir næturnar. Það skiptir einnig máli hvernig bleyjan er uppbyggð, ef það eru góðar teygjur utan um lærin er ólíklegra að bleyjan leki. Innri teygjur (þá er bleyjan með tvöfaldar teygjur eins og Modern Cloth Nappies, Bambino Mio Supreme til dæmis) þá eru enn minni líkur á að bleyjan leki.
Kíkjum aðeins betur á eiginleika Bambus og Hemp.
Hemp (hampur eins og Íslenskan okkar segir)
Bambus / Bamboo
Miðað við þessar upplýsingar hér fyrir ofan sést hversu mikið er á bakvið einungis rakadrægnina í taubleyjum og hversu fjölbreyttar útfærslur er hægt að búa til með einungis innleggjum.
En förum þá aftur yfir í næturbleyju pælingar! Okkar reynsla hefur verið sú að Bambino Mio Supreme + booster er mjög góð næturbleyja. Fyrir sum börn dugar bleyjan ein og sér en BM Supreme er með tvö mjög stór og vegleg Bambus innlegg. Modern Cloth taubleyjurnar hafa einnig reynst vel á næturnar því þær eru með tvöfalda teygju utan um lærin. Þá er hægt að bæta við innleggjum / bústerum án þess að það myndist bil á milli bleyjunnar og læri barnsins sem getur gerst ef taubleyjur eru of "þykkar" eða með of mikið af innleggjum inní. Þá mælum við með því að nota 2-3 innlegg af náttúrulegum efnum.
Nokkrar næturbleyju uppástungur sem hafa reynst vel hjá okkar kúnnum:
- Modern Cloth Nappies duo: Bæði bambus innleggin sem fylgja bleyjunni + bambus trifold frá Modern cloth nappies.
- Bambino Mio Supreme: +þunnt bambus innlegg frá Modern Cloth / +hemp innlegg frá Modern Cloth / +bambus booster frá Hinzling.
-Modern Cloth Nappies skel: + 2x Bambus trifold frá Modern Cloth Nappies
-Bambino Mio AI2: +þunnt bambus innlegg frá Modern Cloth / +bambus booster frá Hinzling
Næturbleyjur geta breyst í takt við aldur barnsins þíns og það mætti segja að taubleyjulífið fer aldrei í fastar skorður því maður er alltaf að uppgötva eitthvað sem hentar vel eða jafnvel betur. Gangi þér ótrúlega vel og ekki hika við að spjalla við okkur í gegnum Instagram @taubleyjur. Við erum þar til að gefa leiðbeiningar og hjálpa♡
Vissir þú að börn sem nota taubleyjur fá minni útbrot eða bruna á bleyjusvæðið! Færri kúkasprengjur fara út fyrir bleyjuna, betri svefn og aukin vellíðan fyrir barnið! Talað eru um að börn sem nota taubleyjur eru fyrri til að nota kopp.
Heimild: Vefsíða Charlie Banana
]]>Vissir þú að börn sem nota taubleiur fá minni útbrot eða bruna á bleyjusvæðið! Færri kúkasprengjur fara út fyrir bleyjuna, betri svefn og aukin vellíðan fyrir barnið! Talað eru um að börn sem nota taubleyjur eru fyrri til að nota kopp. Ástæðan gæti verið sú að börn finna samstundis fyrir bleytunni þegar þau pissa í taubleyju. Einnota bréfbleyjur soga pissið samstundis í sig þannig að barnið verður síður vart við bleytuna. Þetta gerir þjálfunina á koppinn auðveldari og barnið verður meðvitaðra um hvernig þessi partur líkamans virkar.
Einnota bréfbleyjur taka u.þ.b. 450-500 ár að eyðast upp í náttúrunni og á hverju bleyjutímabili hjá einu barni eru notaðar að meðaltali 6,000 bleyjur fyrstu tvö árin. Svo er ekki verra að taubleyjur spara pening til lengri tíma!